TePe framleiðir tannbursta fyrir alls konar tilfelli og aðstæður. 

Special Care hefur sérvalin mjög mjúk og fín hár. Hann er hannaður fyrir fólk með viðkvæmt tannhold og tannhálsa, mikinn munnþurrk. Einnig eftir skurðaðgerðir í munni og fyrir sjúklinga í geisla- og/eða lyfjameðferð.

Gentle Care er einnig mjög mjúkur en hann er hugsaður sem næsta skref á eftir Special Care, þegar ástand munnsins hefur batnað. Einnig á viðkvæm svæði í munni samhliða venjulegum tannbursta.

TePe millitannaburstar til að hreinsa milli tanna. Fást í mörgum stærðum sem passa í tannbil af öllum stærðum.

EasyPick tannstönglar með sílikon húð sem hreinsa vel milli tanna, undir tannréttinga vír og tannboga.

Compact Tuft er sólo bursti með einum brúsk.

Implant Universal Care hefur boginn háls sem auðvelt er að koma að tannplöntum og tannréttingabúnaði, góm og tungumegin.

Implant/Ortho hefur tvær raðir af hárum og mjög mjóan burstahaus. Hann nær að hreinsa vel kringum tannplanta og tannréttingabúnað.

Tannbursti f/gervitennur er með löngum stífum hárum, hann nær vel að hreinsa lausa gervigóma. Hann er notaður með sápu eða hreinsikremi en ekki tannkremi.

Special care

TePe fyrir tannplanta og tannréttingabúnað